Hér er allt í einum pakka: sundið, hóptímar og tækjasalur! Björt og falleg stöð og alltaf nóg að gera. Þægilegt og heimilislegt andrúmsloft í þessari frábæru hverfisstöð. Við bjóðum upp á topp úrval af hóptímum í Kópavogslaug, m.a. spinning og lyftingum ásamt hinu sívinsæla Zumba.
ATH Stöðin fylgir opnunartíma sundlaugarinnar
Þessi litla stöð sem staðsett er á efri hæð sundlaugarinnar Salalaug í Versölum hefur mikinn sjarma. Huggulegur og bjartur tækjasalur tekur á móti þér þegar þú kemur og hér má finna allan aldurshóp fólks stunda æfingar sínar í þessari stöð. Rólegheit og heimilislegt andrúmsloft. Það er mjög vinsælt að smella sér á góða æfingu í tækjasal og fara svo í sund beint á eftir.
ATH þessi stöð fylgir opnunartíma Sundlaugarinnar.
Á Völlunum í Hafnafirði er ein af okkar stærri stöðvum. Hugguleg afgreiðsla tekur á móti þér við komuna þangað. Dökkir litir gera stöðina hipp og cool og svo taka við stórir hóptímasalir. Nóg er af plássi og geggjuð aðstaða til lyftinga! Ef þú vilt taka rosalega æfingu í tækjasal, nú eða smella þér í einn af okkar snilldar hóptímum, þá mælum við með stöðinni á Tjarnarvöllum. Hægt er svo að toppa æfinguna með slökun í sauna og potti!
Þetta er fyrsta og jafnframt stærsta stöðin okkar. Okkur þykir afskaplega vænt um hana. Stórir hóptímasalir og geggjaður tækjasalur einkenna Holtagarða og nóg pláss! Crossfit Katla og Blackout er þar með sína sali, Gíg og Hraun. Hér er nóg pláss fyrir alla.
Ef þú vilt kíkja í bjarta og mátulega stóra heimilislega stöð er Urðarhvarf eitthvað sem þú ættir að skoða. Þegar þú mætir tekur hlýleg afgreiðsla á móti þér. Það eru 3 salir í stöðinni og getur þú valið milli spinning, heitra tíma og svo úrvals lyftinga- og danstíma.
