Stefán Arnar

Um mig

Einkaþjálfari

Stefán Arnar er menntaður einkaþjálfari með yfir áratug af reynslu í styrktarþjálfun og mikinn áhuga á heilsu, næringu og lífsstíl. Markmið Stefáns er að hjálpa fólki að styrkjast bæði líkamlega og andlega með raunhæfri og einstaklingsmiðaðri nálgun. Fyrir honum snýst árangur ekki aðeins um æfingar heldur einnig um að byggja upp góðar venjur, auka sjálfstraust og skapa lífsstíl sem hægt er að viðhalda til lengri tíma. Stefán hefur mikinn áhuga á fjölbreyttri hreyfingu og telur mikilvægt að viðskiptavinir skilji ekki aðeins hvað þeir eru að gera heldur einnig af hverju. Þannig er hægt að byggja upp þekkingu sem nýtist til framtíðar. Hvort sem markmiðið er að léttast, byggja upp styrk, bæta heilsuna eða einfaldlega koma sér af stað, þá fær hver og einn leiðsögn sem tekur mið af sínum markmiðum, reynslu og lífsstíl.

Helstu áhugamál: Heilsa, líkamsrækt og kvikmyndir.

Lífsmottó: On with the butter! 🧈

 

Hlakka til að hjálpa þér að ná þínum markmiðum!

MENNTUN/REYNSLA

Einkaþjálfaraskóli World Class.

HVAR FINNURÐU MIG?

Faxafen, Holtagarðar, Lambhagi, Urðarhvarf, Tjarnarvellir, Salalaug, Kópavogslaug
Ertu með ábendingu út af þessari síðu? Smelltu hér!
cross linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram