Um mig
Ég er íþróttafræðingur og kenni námskeið og hóptíma í Reebok, ásamt því að starfa sem markþjálfi, nuddari, kennari og þó nokkuð margt annað 😊
Bakgrunnur minn er mjög fjölbreyttur, allt frá íslenskufræðum, íslensku táknmáli, íþróttafræði, sálfræði, verkefnastjórnun, kennslu, yoga, markþjálfun og dansi.
Ég hef unnið með börnum, unglingum, fullorðnum og afreksfólki í yfir 15 ár.
Mér finnst mjög gaman að læra eitthvað nýtt, hvort sem það er í námi, vinnu eða af öðrum.
Uppáhaldsmatur er heimagerð pizza með öllu sem maðurinn minn gerir.
Uppáhaldsmóttó „Be the change you wish to see in the world“.
B.A í íslensku og íslensku táknmáli / B.Sc í Íþróttafræði, sálfræði, kennslufræði
Master í verkefnastjórnun (MPM)
Jógakennari (hef lokið 500 tíma grunn og framhaldsnámi), aukalega hef ég lært yin jóga kennslu, jóga nidra og stóla jóga.
ACC markþjálfi
Sjúkranuddari