Ferðalag mitt í þjálfun hófst ekki í ræktinni heldur á ferðalagi um heiminn. Þar uppgötvaði ég kraftinn í hreyfingu sem nærir líkama, huga og tengir okkur við lífið sjálft.
Þjálfunin mín byggir á strúktúr, þekkingu og innsæi, sniðin að því hvar þú ert í dag. Ég hjálpa þér að setja skýr markmið og búa til einfalt, áhrifaríkt plan sem virkar í þínum raunveruleika.
Ferlið hefst á ítarlegu viðtali og mælingum. Út frá niðurstöðum vinnum við saman að skýrri markmiðasetningu og gerum einfalt, markvisst og hvetjandi plan sem hentar þér og þínum lífsstíl.
Ég kenni rétta tækni með skýrum skýringum svo þú vitir af hverju þú gerir æfingarnar, ekki bara hvað.
Ég hef sjálf gengið í gegnum krefjandi tíma og veit að hreyfing getur umbreytt lífi. Nú vil ég gefa það sama til baka.
Tilvitnun: „Once you stop learning, you start dying.“
Þessi tilvitnun er ein af mínum uppáhalds. Hún heldur mér einlægri, vakandi og stöðugt að verða betri í því sem ég geri.
Tungumál: íslenska, enska, pólska
Sendu mér línu – hvort sem þú ert tilbúin/n að byrja eða bara með spurningu. Enginn þrýstingur – bara alvöru stuðningur.
Menntun/Reynsla:
ÍAK einka- og styrktarþjálfun
Fimleikaþjálfari í Fylki
TGC CrossFit Level 1
Stúdent af íþróttabraut FB
Skyndihjálp – Rauði krossinn
Þjálfað börn frá 2022
Hópþjálfun fyrir konur
Sérhæfing:
Hóp-, einka- og fjarþjálfun
Byrjendur og lengra komna
Endurhæfing (brjósklos, axlir)
Andlegur stuðningur og líkamsvitund
Hreyfing með og eftir meðgöngu
Hreyfiþjálfun barna