Erla María

Um mig

Einkaþjálfari

Hóptímakennari

Námskeiðakennari

Ég er hóptímakennari og einkaþjálfari en samhliða því starfa ég sem endurskoðandi.

Líkamsrækt hefur alltaf verið mín útrás og ástríða, hvort sem það er í formi crossfit, olympískra lyftinga, ketilbjalla, tabata eða annarrar styrktarþjálfunar. Á sama tíma hef ég á síðustu árum uppgötvað gildi þess að hægja á og gefa mér rými fyrir endurheimt, jóga og rólegri æfingar.

Fátt veitir mér jafn mikla gleði og að vera úti í náttúrunni, hvort sem það er gönguferð í íslensku landslagi eða einfaldlega að njóta ferska loftsins. Ég trúi því að hreyfing eigi að næra bæði líkama og huga og að hún eigi alltaf að vera í takt við það sem við þurfum hverju sinni.

Ástríða mín er að sjá fólk blómstra og öðlast styrk og sjálfstraust í gegnum hreyfingu. Markmiðið mitt er að styðja þig á þínu ferðalagi óháð því hvar þú ert að byrja eða hvert þú stefnir.

Mitt motto: Elevate yourself always

 

 

MENNTUN/REYNSLA

Hóptímakennaranám hjá Fusion Fitness Academy

Einkaþjálfaranám hjá Einkaþjálfaraskóla World Class

BSc í Iðnaðarverkfræði

BSc í Viðskiptafræði

HVAR FINNURÐU MIG?

Faxafen, Holtagarðar, Lambhagi, Urðarhvarf, Tjarnarvellir, Kópavogslaug
848-5100
Ertu með ábendingu út af þessari síðu? Smelltu hér!
cross linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram