Í 14. grein
Persónuverndarlaga segir m.a. um rafræna vöktun: „Þegar rafræn vöktun fer fram á vinnustað eða á almannafæri skal með merki eða á annan áberandi hátt gera glögglega viðvart um þá vöktun og hver sé ábyrgðaraðili.“
Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er: RFC ehf. kt.7105110120 ber ábyrgð á rafrænni vöktun sem fer fram á heilsuræktarstöðvum ReebokFitness
Tilgangur vöktunarinnar: Í öryggis- og eignavörsluskyni.
Rafræn vöktun fer fram í þeim tilvikum sem hún telst nauðsynleg. Myndavélaeftirlit getur meðal annars þótt nauðsynlegt til að tryggja öryggi starfsfólks og þjónustunotenda eða til að koma í veg fyrir þjófnað eða eignaspjöll.
Heimild til vinnslu:
Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna RFC ehf. af öryggis- og eignavörslu
Tegundir persónuupplýsinga: Unnið er með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.
Viðtakendur: Einungis er heimilt að skoða myndefni við sérstök tilefni og er það aðeins aðgengilegt æðstu stjórnendum RFC. Efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10. gr. reglna
nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Varðveislutími myndefnis: Myndefni er almennt varðveitt í 30 daga eða skemur og eyðist sjálfkrafa. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum af efninu eytt.“ Sjá að öðru leyti 2. tölul. 2. mgr. 5. gr. og 11. gr. reglna
nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Réttindi einstaklinga:
Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga
nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá
Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.
Frekari upplýsingar um réttindi einstaklinga í tengslum við þessa vöktun má nálgast með tölvupósti til:
voktun@rfc.is