Er lent í Kötlu Fitness
HYROX er alþjóðlegt æfingakerfi fyrir alla sem sameinar hlaup og einfaldar styrktar- og þolæfingar.
Þú þarft ekki að stefna á keppni, bara að vilja komast í betra form.
Í Lambhaga æfum við HYROX á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum á sama búnaði og notaður er á mótum.
Keppnisformið
Formið er alltaf það sama: átta sinnum 1 km hlaup og ein æfingastöð á milli hlaupa. Stöðvarnar eru alltaf í sömu röð.
Allt er staðlað, þyngdir, vegalengdir, búnaður og röð æfinga. Tíminn þinn í Hamborg er því sambærilegur við tíma keppenda í Dubai, London eða New York.
Engin tímamörk eru og engin undankeppni. Hægt er að keppa einn, í pari eða í boðhlaupsliði. Reglur og næstu mót eru á hyrox.com.
Stöðvarnar í röð · 1 km hlaup á milli
Fyrir hvern?
Sumir mæta til að undirbúa sig fyrir mót og vilja vita nákvæmlega hvernig hver stöð á að líða. Aðrir mæta af því að þjálfunin er krefjandi og fjölbreytt og byggir upp bæði þol og styrk. Bæði er jafn gilt.
Ef þú hefur mætt á þriðjudegi, fimmtudegi eða sunnudegi í Lambhaga undanfarið ár hefur þú sennilega þegar prófað HYROX. Tímarnir eru á sömu dögum með sömu þjálfurum.
Aðstaðan
Sleði á keppnisteppi hegðar sér öðruvísi en á venjulegu gólfi. Ef þú stefnir á keppni skiptir miklu að æfa á réttu undirlagi með réttum búnaði.
Nýtt teppi eins og keppnisteppið á HYROX-mótum og nýir sleðar fyrir push og pull.
Nýir sandpokar og nýtt wall ball target sem kemur innan skamms.
Assault-hjólin hafa verið tekin úr umferð og Rogue-hjól komin í staðinn.
Hreysti hefur yfirfarið öll þolþjálfunartækin, lagað þau og smurt.
HYROX
Er lent í Kötlu Fitness
Hafðu samband og við græjum prufutíma. Það sama gildir ef þú vilt bjóða vini með í tíma.
