Sá allra heitasti í Reebok Fitness! Hér færðu allt í einum pakka fyrir helstu vöðvahópana ásamt fjöri og ríflega af svita.
Þessi er möst í vikuplanið!
Unnið er með eigin líkamsþyngd og lóð, Body Bar stangir, bolta, diska og fl. Allur líkaminn er þjálfaður með markvissum æfingum, áhersla á djúpvöðva líkamans með mörgum endurtekningum, einnig frábærar teygjur. Tími sem þú verður að prófa!
Einn af okkar bestu tímum og sá vinsælasti. Við hönnuðum alhliða æfingarkerfi með áherslu á styrktarþjálfun og tónun vöðva.
Tímarnir eru ýmist kenndir í infrarauðum sal eða heitum sal.
Þessir tímar eru frábærir til að koma sér af stað hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin. Við leggjum áherslu á að allir geti komið þar sem þjálfari útfærir æfingar í nokkrum getustigum.. svo þú getur gert æfingarnar á þínum hraða og álagi.