Það þarf að fara í umfangsmiklar framkvæmdir við báða búninsgklefana -
Viðgerðir á burðarvirki og veggjum, endurnýjun gólfefna í sturtum svo eitthvað sé nefnt.
Áætluð verklok eru í lok júlí - á meðan verða klefarnir lokaðir
Við munum uppfæra þessa síðu með nauðsynlegum upplæysingum þegar við viitum meira.
15.maí lokar báðum klefunum
Sturtur, sauna og pottasvæði í Lambhaga eru lokuð frá og með föstudeginum 15. maí, og verða áfram lokuð næstu vikurnar meðan á framkvæmdum stendur. Búningsklefar, skápar og skiptiaðstaða verða áfram opin.
Athugið þó að kvennaklefinn verður alveg lokaður í dag, 15. maí, á meðan verið er að stúka sturtusvæðið frá skápasvæðinu.
Á meðan bendum við á aðrar stöðvar Kötlu Fitness:
Ástæðan er nauðsynlegar framkvæmdir í sturtuklefunum, bæði karla- og kvennamegin. Það þarf meðal annars að laga veggi, skipta um gólfefni, bæta við niðurföllum og fara í fleiri lagfæringar. Við gerum ráð fyrir að framkvæmdirnar geti tekið 1–2 mánuði, en við gerum allt sem við getum til að klára þetta eins hratt og vel og mögulegt er.
Við biðjumst innilega afsökunar á ónæðinu og þökkum kærlega fyrir skilninginn
