Kanntu að “halda á skrúfjárni” og hefur gaman af því að finna lausnir á vandamálum og laga hluti?
- Fjölbreytt starf sem hentar áhugasömu fólki á öllum aldri og getur hafið störf sem allra fyrst.
- Viðhald á æfingabúnaði og öðrum innanstokksmunum á heilsuræktarstöðvum ReebokFitness víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.
- Vinnutíminn er frá 9.00-15:00 alla virka daga. Farið á milli stöðva og hinum ýmsu verkefnum sinnt.
Eiginleikar sem skipta máli:
- Snyrtimennska og jákvæðni.
- Reynsla af viðgerðum, útsjónarsemi og frumkvæði.
- Heilsusamlegur lífstíll.
- Gilt ökuskírteini (ekki verra að hafa bíl til umráða)
Ekki hika!
Umsóknarfrestur er til 9. júlí, smelltu á linkinn fyrir neðan og merktu umsóknina “Reddari í Reebok” https://reebokfitness.is/storf/