Það þarf að fara í umfangsmiklar framkvæmdir við báða búninsgklefana -
Viðgerðir á burðarvirki og veggjum, endurnýjun gólfefna í sturtum svo eitthvað sé nefnt.
Áætluð verklok eru í lok júlí - á meðan verða klefarnir lokaðir
Við munum uppfæra þessa síðu með nauðsynlegum upplæysingum þegar við viitum meira.
15.maí lokar báðum klefunum
Sturtur, sauna og pottasvæði í Lambhaga eru lokuð frá og með föstudeginum 15. maí, og verða áfram lokuð næstu vikurnar meðan á framkvæmdum stendur. Búningsklefar, skápar og skiptiaðstaða verða áfram opin.
Athugið þó að kvennaklefinn verður alveg lokaður í dag, 15. maí, á meðan verið er að stúka sturtusvæðið frá skápasvæðinu.
Á meðan bendum við á aðrar stöðvar Kötlu Fitness:
Ástæðan er nauðsynlegar framkvæmdir í sturtuklefunum, bæði karla- og kvennamegin. Það þarf meðal annars að laga veggi, skipta um gólfefni, bæta við niðurföllum og fara í fleiri lagfæringar. Við gerum ráð fyrir að framkvæmdirnar geti tekið 1–2 mánuði, en við gerum allt sem við getum til að klára þetta eins hratt og vel og mögulegt er.
Við biðjumst innilega afsökunar á ónæðinu og þökkum kærlega fyrir skilninginn
Á að "lyfta" sér upp yfir hátíðarnar?💪
Hér getur þú skoðað opnunartímana yfir hátíðarnar. Allar stöðvar nema í Salalaug og Kópavogslaug munu hafa óbreytta opnunartíma.
Athugið að lokað verður fyrir 24/7 aðgengi í Lambhaga frá kl.22:00 þann 31.desember til kl.5:45 þann 1.janúar.
24. og 31. desember LOKAÐ
26. desember Opið kl. 12-18
1. janúar 2025 LOKAÐ
Gleðilega hátið 💚🥳
Want to train over the holidays?💪
Here you will find our opening hours over the coming holiday season. All our facilities except Salalaug and Kópavogslaug will have normal opening hours.
24/7 access to Lambhagi will be closed from 22:00 on the 31st of december until 5:45 on the 1st of january.
24. og 31. december CLOSED
26. december Open 12:00-18:00
1. january 2025 CLOSED
Happy holidays from all of us at Katla Fitness 💚🥳
Við erum spennt að tilkynna að Reebok Fitness heitir nú Katla Fitness! Nafnið stendur fyrir kraftinn sem býr í okkur öllum. Við viljum hjálpa þér að virkja þinn!
Samstarfinu við Reebok vörumerkið lauk nýlega, og við ákváðum að nýta tækifærið til að styrkja okkar eigin ímynd. Nafnið Katla hefur fylgt okkur frá upphafi með CrossFit KÖTLU, og það var því eðlilegt skref að gera það að nafni allra stöðvanna okkar.
Allt helst óbreytt nema nafnið. Við bjóðum áfram sömu þjónustu, sömu stöðvar og sama góða fólkið. Á næstu vikum munum við skipta út ljósaskiltum og smám saman uppfæra merkingar í stöðvunum.
Reebok verður áfram hluti af okkar sögu og mun alltaf eiga sinn stað hjá okkur – engin skömm þó nafnið sjáist enn einhvers staðar.
Við leituðum til meðlima okkar og vina til að finna nýtt nafn, og öll gátu sent inn sínar hugmyndir. Sigurvegarinn hlaut gjafabréf að andvirði 250.000 króna hjá Icelandair!
Það bárust hátt í 3.000 tillögur, og við erum djúpt þakklát fyrir alla þátttökuna. Við erum sannfærð um að Katla Fitness sé fullkomið nafn fyrir framtíðina.
Við hlökkum til að sjá þig hjá okkur, virkja þinn kraft og halda áfram að byggja upp öflugt samfélag saman.
Kær kveðja,
Katla Fitness

Blackout er æfingarkerfi sem reynir á þín efstu mörk bæði líkamlega og andlega. Það mun reyna á úthald, hópvinnu, útsjónarsemi og haus.
Blackout er hugsað fyrir þá sem vilja ögra sjálfum sér og þeim mörkum sem viðkomandi hefur sett sér sem einstaklingur. Þáttakendur verða að vera viðbúnir að mæta líkamlegum og andlegum áskorunum sem kunna að bíða þeirra á hverri æfingu
Opinn kynningartími - Skráðu þig hér!
Við þurfum að breyta nafni okkar, en samstarfinu við Reebok vörumerkið er lokið. Við leitum því til ykkar, okkar kæru meðlima og vina, til að finna upp á nýju nafni!
Við munum leita að nýju nafni sem endurspeglar það sem við stöndum fyrir í dag. Til að finna það rétta höldum við nafnasamkeppni þar sem meðlimir okkar geta sent inn sínar hugmyndir. Sigurvegarinn hlýtur verðlaun að andvirði 250.000 króna hjá Icelandair!
Komdu með þína tillögu með því að smella HÉR 💚
Kanntu að “halda á skrúfjárni” og hefur gaman af því að finna lausnir á vandamálum og laga hluti?
Eiginleikar sem skipta máli:
Ekki hika!
Umsóknarfrestur er til 9. júlí, smelltu á linkinn fyrir neðan og merktu umsóknina “Reddari í Reebok” https://reebokfitness.is/storf/
Holtagörðum, Urðarhvarfi, Tjarnarvöllum, Faxafeni og Lambhaga
Opnunartímar þar haldast óbreyttir yfir páskana.
Páska-sunnudagur er þá bara eins og venjulegur sunudagur osfrv.
Kópavogslaugar og þjónustuverið verða með sérstakan Páska-opnunartíma sem þú getur séð á meðfylgjandi mynd.
English:
Easter opening hours
Easter will not affect the opening hours of our clubs in Holtagarðar, Urðarhvarf, Tjarnarvellir, Faxafen og Lambhagi. They will stay open as usual. Easter Sunday is just Sunday and so on.
Kópavogs- and Salalaug and the helpdesk(Þjónustuver) will have special openinghours.
Á að taka á því yfir hátíðarnar?💪
Hér getur þú skoðað opnunartímana yfir hátíðarnar. Allar stöðvar nema í Salalaug og Kópavogslaug munu hafa óbreytta opnunartíma.
Þjónustuverið okkar verður lokað 24. og 31. desember.
Athugið að lokað verður fyrir 24/7 aðgengi í Lambhaga frá kl.20:00 þann 31.desember til kl.5:45 þann 1.janúar.
Gleðilega hátið 💚🥳
Want to train over the holidays?💪
Here you will find our opening hours over the coming holiday season. All our facilities except Salalaug and Kópavogslaug will have normal opening hours.
The helpdesk (þjónustuver) will be closed on the 24th and 31st of december.
24/7 access to Lambhagi will be closed from 20:00 on the 31st of december until 5:45 on the 1st of january.
Happy holidays from all of us at Reebok Fitness 💚🥳
Glænýtt námskeið frá meistara og reynslubolta honum Kjartani Guðbrands!
Sérhannað námskeið, í samvinnu við afreksfólk.is, ætlað knattspyrnuiðkendum á aldrinum 13-16 ára þar sem kenndar verða m.a styrktaræfingar, functional teygjur ásamt hraðþjálfun.
Farið verður yfir mikilvægi svefns og næringar, andlegu og félagslegu þættina, mikilvægi virðingar og framkomu innan sem utan vallar ásamt öllu því helsta er snýr að umgjörð fótboltans.
Námskeiðið er kennt tvisvar í viku og auk þess verða fyrirlestrar í fyrstu og síðustu viku námskeiðsins.
Að námskeiði loknu býðst iðkendum sérstök afkrekskort er gilda á allar stöðvar Rebook Fitness og 3 sundlaugum ásamt aðgangi að æfingarprógrammi í sérhönnuðu appi.

Smelltu á hlekkina til að skoða nánar:
https://www.sportabler.com/shop/afreksfolk
https://www.afreksfolk.is/
Holtagörðum, Urðarhvarfi, Tjarnarvöllum, Faxafeni og Lambhaga
Opnunartímar þar haldast óbreyttir yfir páskana.
Páska-sunnudagur er þá bara eins og venjulegur sunudagur osfrv.
Kópavogslaugar og þjónustuverið verða með sérstakan Páska-opnunartíma sem þú getur séð á meðfylgjandi mynd.
English:
Easter opening hours
Easter will not affect the opening hours of our clubs in Holtagarðar, Urðarhvarf, Tjarnarvellir, Faxafen og Lambhagi. They will stay open as usual. Easter Sunday is just Sunday and so on.
Kópavogs- and Salalaug and the helpdesk(Þjónustuver) will have special openinghours.
