NýttLambhagi

HYROX

Er lent í Kötlu Fitness

HYROX er alþjóðlegt æfingakerfi fyrir alla sem sameinar hlaup og einfaldar styrktar- og þolæfingar.
Þú þarft ekki að stefna á keppni, bara að vilja komast í betra form.
Í Lambhaga æfum við HYROX á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum á sama búnaði og notaður er á mótum.

Skoða tímatöflu ›
HvenærÞriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga
HvarCrossFit Katla, Lambhaga
Fyrir hverjaFyrir alla
VerðInnifalið í CrossFit-aðild

Keppnisformið

Átta hlaup og átta stöðvar

Formið er alltaf það sama: átta sinnum 1 km hlaup og ein æfingastöð á milli hlaupa. Stöðvarnar eru alltaf í sömu röð.

Allt er staðlað, þyngdir, vegalengdir, búnaður og röð æfinga. Tíminn þinn í Hamborg er því sambærilegur við tíma keppenda í Dubai, London eða New York.

Engin tímamörk eru og engin undankeppni. Hægt er að keppa einn, í pari eða í boðhlaupsliði. Reglur og næstu mót eru á hyrox.com.

Stöðvarnar í röð · 1 km hlaup á milli

  1. Stöð 1SkiErg1000 m
  2. Stöð 2SleðaýtingSled push
  3. Stöð 3SleðadrátturSled pull
  4. Stöð 4Burpee broad jumps
  5. Stöð 5Róður1000 m
  6. Stöð 6Farmers carry
  7. Stöð 7SandpokaframstigSandbag lunges
  8. Stöð 8Wall balls
Tveir iðkendur með sandpoka á æfingu

Fyrir hvern?

Keppni eða bara góð æfing

Sumir mæta til að undirbúa sig fyrir mót og vilja vita nákvæmlega hvernig hver stöð á að líða. Aðrir mæta af því að þjálfunin er krefjandi og fjölbreytt og byggir upp bæði þol og styrk. Bæði er jafn gilt.

Ef þú hefur mætt á þriðjudegi, fimmtudegi eða sunnudegi í Lambhaga undanfarið ár hefur þú sennilega þegar prófað HYROX. Tímarnir eru á sömu dögum með sömu þjálfurum.

Aðstaðan

Nýr HYROX-búnaður

Sleði á keppnisteppi hegðar sér öðruvísi en á venjulegu gólfi. Ef þú stefnir á keppni skiptir miklu að æfa á réttu undirlagi með réttum búnaði.

Keppnisteppi og sleðar

Nýtt teppi eins og keppnisteppið á HYROX-mótum og nýir sleðar fyrir push og pull.

Sandpokar og wall balls

Nýir sandpokar og nýtt wall ball target sem kemur innan skamms.

Rogue-hjól

Assault-hjólin hafa verið tekin úr umferð og Rogue-hjól komin í staðinn.

Þoltæki í toppstandi

Hreysti hefur yfirfarið öll þolþjálfunartækin, lagað þau og smurt.

Iðkandi á æfingu í Lambhaga

HYROX

Er lent í Kötlu Fitness

Viltu prófa tíma?

Hafðu samband og við græjum prufutíma. Það sama gildir ef þú vilt bjóða vini með í tíma.

Katla Fitness er opinber HYROX Training Club. HYROX og tengd merki eru í eigu HYROX World GmbH og notuð með leyfi.
Ertu með ábendingu út af þessari síðu? Smelltu hér!
cross linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram