Matthías Már Heiðarsson

Um mig

Einkaþjálfari

Árangur gerist ekki fyrir tilviljun.

Ég er með meistaragráðu í íþrótta- og heilsufræði og víðtæka reynslu af þjálfun bæði almennings og afreksíþróttafólks. Ég hef þjálfað landsliðsfólk í frjálsíþróttum, kraftlyftingum, fótbolta og körfubolta og legg áherslu á faglega, markvissa og einstaklingsmiðaða þjálfun sem skilar árangri.

Sérsvið

  • Styrktarþjálfun
  • Þyngdartap og lífsstílsbreytingar
  • Sprett- og hraðaþjálfun
  • Tækni í grunnlyftum (hnébeygja, bekkpressa og réttstöðulyfta)
  • Tækni í ólympískum lyftingum (snörun og clean)

Hvort sem markmið þitt er að léttast, byggja upp styrk, bæta heilsuna eða bæta árangur í íþróttum færðu þjálfun sem er sniðin að þínum markmiðum og byggir á vísindalegum grunni og reynslu. Allir eru velkomnir, hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í ræktinni eða stefnir á afreksárangur.

Þú hefur nú þegar tekið fyrsta skrefið með því að lesa þetta. Ég hlakka til að hjálpa þér að ná markmiðum þínum.

 

MENNTUN/REYNSLA

Meistaragráða í íþrótta- og heilsufræði og víðtæk reynsla af þjálfun bæði almennings og afreksíþróttafólks.

 

HVAR FINNURÐU MIG?

Faxafen, Holtagarðar, Lambhagi, Urðarhvarf, Tjarnarvellir, Salalaug, Kópavogslaug
Ertu með ábendingu út af þessari síðu? Smelltu hér!
cross linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram