Ég er viðskiptafræðingur og starfa í ferðabransanum. Helstu áhugamálin eru ferðalög, líkamsrækt og samvera með fjölskyldu og vinum. Ég hef líka einstaklega gaman að öllum áskorunum bæði í leik og starfi og reyni að fara alltaf aðeins lengra, stíga jafnvel stundum út fyrir þægindarrammann og prófa eitthvað alveg nýtt.
Uppáhaldsmaturinn minn er tapas.
Mitt lífsins mottó er 'Dagurinn í dag er dagurINN'.