Svanberg Halldórsson

Um mig

Hóptímakennari

Ég er 42 ára viðskiptafræðingur og sérlegur áhugamaður um svokallað „Partý-Spinning“. Ég hef boðið upp á Party-Spinning tíma í Reebok Fitness í 5 ár og er hvergi nærri hættur. Að mínu mati á spinning á að vera skemmtileg útrás, uppfullt af gleði og rífandi stemningu. Markmiðið mitt í hverjum tíma er að þátttakendur gleymi sér í gleðinni. Við hreyfum okkur mikið á hjólunum, brosum, klöppum og jafnvel syngjum með bestu slögurunum. Að sjálfsögðu er þetta á sama tíma brjáluð brennsla og frábær hreyfing sem ætti að henta flestum. Það eru engir litakóðar í Party-Spinning og engar tölur á skjá sem við eltumst við; hinsvegar stillum við mótstöðuna á hjólinu eins og hentar hverjum og einum og leggjum ofuráherslu á að hjóla í takt við tónlistina. Ég skora á alla áhugasama að kíkja í tíma til mín í Lambhögum og taka þátt í gleðinni. Sjáumst eldhress!

HVAR FINNURÐU MIG?

Faxafen, Holtagarðar, Lambhagi, Urðarhvarf, Tjarnarvellir
Ertu með ábendingu út af þessari síðu? Smelltu hér!
cross linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram