Á Völlunum í Hafnafirði er ein af okkar stærri stöðvum. Hugguleg afgreiðsla tekur á móti þér við komuna þangað. Dökkir litir gera stöðina hipp og cool og svo taka við stórir hóptímasalir. Nóg er af plássi og geggjuð aðstaða til lyftinga! Ef þú vilt taka rosalega æfingu í tækjasal, nú eða smella þér í einn af okkar snilldar hóptímum, þá mælum við með stöðinni á Tjarnarvöllum. Hægt er svo að toppa æfinguna með slökun í gufu og potti!