Sterkar Konur - Framhald

7 apríl, 2026
6 vikur
13.900.-

Styrkur

70%

Úthald

30%

Liðleiki

30%

Núvitund

50%

Fyrir konur sem hafa lokið Sterkar konur 30+, 40+ eða 50+ og vilja halda áfram að byggja styrk. Markmiðið er einfalt: að verða sterkari, öruggari og byggja líkama til framtíðar.

Staðsetning

Urðarhvarf

Sterkar konur – Framhald er framhaldsnámskeið fyrir konur sem vilja halda áfram að þróa styrk sinn, hreyfigetu og sjálfstraust í æfingum.

Við vinnum áfram með hagnýta styrktarþjálfun og byggjum upp sterkan og stöðugan líkama.

Í framhaldinu vinnum við meira með stigvaxandi álag , við þyngjum smám saman, fylgjumst með framförum og byggjum styrk á öruggan hátt.

Markmiðið er að þú haldir áfram að verða sterkari, sjálfstæðari og öruggari og öðlist enn meira sjálfstraust í þinni þjálfun og að þú byggir upp líkama sem  styður þig í daglegu lífi, verndar bein og vöðva og heldur okkur virkari með aldrinum.

Sterkur líkami byggist upp yfir tíma.

Og þessi hópur heldur áfram þeirri vegferð.

Æft í lokuðum hópi 2 sinnum í viku.
Fyrst er að Gerast Meðlimur Kötlu Fitness síðan skráirðu þig á námskeið - hér Vertu velkomin 💚

Urðarhvarf

Train

Hefst: 7 apríl

Þriðjudagar 16.30-17.30
Fimmtudagar 16.30-17.30
Kaupa

Sigga Fanndal

Kaupa
Smelltu hér fyrir kaupleiðbeiningar
map-markercalendar-fullhourglass