Styrkur
70%
Úthald
30%
Liðleiki
30%
Núvitund
50%
Sérstaklega hannað fyrir konur 30+ sem vilja byggja upp styrk, orku og sjálfstraust með markvissri styrktarþjálfun.
Eftir 30 ára aldur byrjar vöðva- og beinmassi smám saman að minnka og margar konur finna fyrir breytingum á líkamanum og líðaninni. Það sem “virkaði alltaf” virkar ekki lengur á sama hátt.
Hormónabreytingar geta haft áhrif á:
• orku og svefn
• vöðva- og liðverki
• skapsveiflur
• fitudreifingu
• líðan og sjálfstraust
Rétt styrktarþjálfun getur skipt gríðarlegu máli 💚
Þegar við byggjum upp vöðvamassa:
• hækkar grunnbrennsla
• við styrkjum beinþéttni
• bætum líkamsstöðu og styrk
• styðjum betur við hormónin okkar
Á námskeiðinu lærir þú:
• að lyfta lóðum með góðri tækni
• að byggja upp styrk á öruggan hátt
• að skilja betur líkamann og hormónin
• að vinna með líkamann — ekki á móti honum
Æft er í lokuðum hópi 2x í viku með stuðningi og markvissri leiðsögn.
Fyrst þarf að Gerast Meðlimur hjá Kötlu Fitness og síðan skrá sig á námskeiðið - hér-
Vertu hjartanlega velkomin 💚
Fjölbreyttar og markvissar æfingar, skemmtilega hreyfing og góð fræðsla um líkamann og helstu starfssemi hans.


