Styrkur
50%
Úthald
50%
Liðleiki
30%
Núvitund
10%
Grunnnámskeið CrossFit
Við köllum september oft litla janúar. Sumarfríið er búið, rútínan tekur við á ný og margir nýta tækifærið til að setja heilsuna aftur í forgang. Grunnnámskeiðið er fullkomin leið til að koma sér af stað og byggja upp góðar æfingavenjur fyrir veturinn.
Á námskeiðinu förum við yfir helstu undirstöðuatriði CrossFit, þar á meðal:
Grunnstyrktaræfingar
Tækni í helstu stangaræfingum
Fimleikahreyfingar og skalanir
Hvernig þú aðlagar æfingar að þinni getu
Þú þarft enga fyrri reynslu af CrossFit eða líkamsrækt. Námskeiðið hentar öllum sem vilja byrja á réttan hátt með góðri leiðsögn frá reyndum þjálfurum.
Haustið er frábær tími til að byrja. Við hjálpum þér að komast hratt, örugglega og með sjálfstraust af stað í CrossFit.
Við hlökkum til að taka á móti þér í Kötlu! 🖤💪
✨ Kort út september fylgir með í kaupunum, þannig að þú getur strax byrjað að mæta í almenna tíma þegar grunnnámskeiðinu lýkur og fest nýju venjurnar í sessi.


