Styrkur
80%
Úthald
60%
Liðleiki
50%
Núvitund
100%
Breyttur lífstíll með Katrínu og Siggu er 12 vikna námskeið fyrir alla sem vilja koma sér af stað í hreyfingu á skemmtilegan og raunhæfan hátt.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á alhliða heilsu, aukinn styrk, betra þol og meiri vellíðan með fjölbreyttri hreyfingu sem hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja finna taktinn aftur.
Í hverri viku eru:
🔥 1 heitur tími
🏋️ 1 styrktartími
🏔️ 1 útitími (föstudagar)
Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að byggja upp sterkari líkama og betri venjur til framtíðar. Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að upplifa meiri orku, aukið sjálfstraust í hreyfingu og betra úthald í daglegu lífi.
Námskeiðið hentar þeim sem vilja:
• Komast af stað eftir pásu
• Byggja sig upp á öruggan hátt
• Verða sterkari og bæta þol
• Geta gengið á fjöll og fell
• Geta gengið eða hlaupið 2–3 km
Lögð er áhersla á jákvætt umhverfi, stuðning og að hver og einn geti unnið út frá sinni getu.
• Lokaður Facebook hópur með stuðningi og hvatningu
• Fræðsla um líkamann, hormón og vellíðan
• Hugmyndir og uppskriftir
• Afslættir hjá ýmsum samstarfsaðilum og verslunum


