Grunnnámskeið CrossFit – Haustið 2026 🍂

24 ágúst, 2026
11 dagar
18.950.-

Styrkur

50%

Úthald

50%

Liðleiki

30%

Núvitund

10%

Nú er Grunnnámskeið CrossFit Kötlu 24. ágúst - 3. september komið í sölu og er þetta frábært tækifæri til að hefja haustið af krafti á öruggan, skemmtilegan og markvissan hátt.

Staðsetning

Lambhagi

Grunnnámskeið CrossFit

Við köllum september oft litla janúar. Sumarfríið er búið, rútínan tekur við á ný og margir nýta tækifærið til að setja heilsuna aftur í forgang. Grunnnámskeiðið er fullkomin leið til að koma sér af stað og byggja upp góðar æfingavenjur fyrir veturinn.

Á námskeiðinu förum við yfir helstu undirstöðuatriði CrossFit, þar á meðal:

  • Grunnstyrktaræfingar

  • Tækni í helstu stangaræfingum

  • Fimleikahreyfingar og skalanir

  • Hvernig þú aðlagar æfingar að þinni getu

Þú þarft enga fyrri reynslu af CrossFit eða líkamsrækt. Námskeiðið hentar öllum sem vilja byrja á réttan hátt með góðri leiðsögn frá reyndum þjálfurum.

Haustið er frábær tími til að byrja. Við hjálpum þér að komast hratt, örugglega og með sjálfstraust af stað í CrossFit.

Við hlökkum til að taka á móti þér í Kötlu! 🖤💪

 

Hvað er innifalið?

✨ Kort út september fylgir með í kaupunum, þannig að þú getur strax byrjað að mæta í almenna tíma þegar grunnnámskeiðinu lýkur og fest nýju venjurnar í sessi.

Lambhagi

Crossfit- salur

Hefst: 24 ágúst

Mánudagar 19:15 - 20:15
Þriðjudagar 19:15 - 20:15
Fimmtudagar 19:15 - 20:15
Kaupa

Þjálfarar Crossfit Kötlu

Kaupa
Smelltu hér fyrir kaupleiðbeiningar
map-markercalendar-fullhourglass