Styrkur
70%
Úthald
30%
Liðleiki
30%
Núvitund
50%
Sterkar konur – Framhald er framhaldsnámskeið fyrir konur sem vilja halda áfram að þróa styrk sinn, hreyfigetu og sjálfstraust í æfingum.
Við vinnum áfram með hagnýta styrktarþjálfun og byggjum upp sterkan og stöðugan líkama.
Í framhaldinu vinnum við meira með stigvaxandi álag , við þyngjum smám saman, fylgjumst með framförum og byggjum styrk á öruggan hátt.
Markmiðið er að þú haldir áfram að verða sterkari, sjálfstæðari og öruggari og öðlist enn meira sjálfstraust í þinni þjálfun og að þú byggir upp líkama sem styður þig í daglegu lífi, verndar bein og vöðva og heldur okkur virkari með aldrinum.
Sterkur líkami byggist upp yfir tíma.
Og þessi hópur heldur áfram þeirri vegferð.


